Veil Speil

mánudagur, mars 07, 2005

Ullabjakk

Nú er komið nóg...

ég er búin að gefast upp... ég er sammála tíkarpsenunum, fólk er ekki í lagi. Mig langar bara að slá mannkynið utanundir. Er fólk upp til hópa fífl?? ég spyr. Mikilláta, hrokafulla, hégómlega fólk!! Af hverju hagar fólk sér ekki bara vel og er tillitssamt, umburðarlynt og gott!!! Hvar er góða fólkið?? HVAR????

Er heiðarlegt og gott fólk útdautt, eða hefur það kannski aldrei verið til?? Er þetta spurning um það að bíómyndir og sjónvarp hefur búið til þessa ímynd af góðu fólki sem er réttlátt og indælt??

Eða er ég fordómafull og dómhörð helv... belja sem gefur engum séns?!?!?! (æ nei ekki belja, ég fíla ekki beljur, höfum það tík, hundar eru skárri kostur)

Hvort sem er rétt þá er þetta lose/lose situation.

Vonleysiskveðja
Vala

1 Comments:

At 10:57 PM, Blogger dista said...

Já...þetta er vonleysisástand.
Ég hugsa að ég ætli í einhverskonar verkfall...

 

Sendu inn athugasemd

<< Home

Free Hit Counters
Free Hit Counter