Veil Speil

miðvikudagur, mars 16, 2005

Sól sól skín á mig

Vitiði, lífið er stutt og því skil ég barasta ekki af hverju ég sit heima og horfi á ANTM í sjónvarpinu... leyfum okkur að komast að því af hverju það er... jú, það er vegna þess að ég er í biðstöðu, bið bið bið bið... en um leið og biðinni er lokið þá bara skelli ég mér í ræktina og.. nei ekki í ræktina, ræktin tekur orku.. jú kannski smá í ræktina.. svo bara út að hitta fólk, hitta fólk og tala við fólk og kynnast fólki og læra meira um fólk... fólk er forvitnilegt og skemmtilegt ef maður leyfir sér að sjá skondnu hliðina á því.

Jáhhá.. það er málið, oooog gera eins og síðustu helgi, eftir vinnu á föstudaginn fór ég með brauð til andanna á tjörninni og spjallaði við þær.. eða.. aðallega gæsafrekjurnar sem næstum átu mig til að ná brauðinu... en þær eru samt soldið sætar híhí :)

Nú er komið að því aftur að leita að íbúð... bjánablesinn sem á íbúðina sem ég leigi ætlar að selja hana, svo ég er aftur næstum komin á götuna... skemmtilegt sígaunalíf sem ég lifi. Ætli ég hafi verið sígauni í fyrra lífi?? Það hljómar alveg ágætlega, aldrei að stoppa á einum stað lengi og kynnast fólki og svo bara stinga af til að hitta fleira fólk.. sígaunar hljóta að hafa haft mikla innsýn inn í mannfólk því þau hafa hitt svo marga.. hmm... sígaunalíf.. er það kannski málið fyrir Völuna litlu?? Nahh... ég er meira svona "hafa öryggi" kind of gal. Eða hvað????

1 Comments:

At 3:16 PM, Anonymous Nafnlaus said...

þetta er alveg týpískt. Maður les bara um það á blogginu að þig langi til að hitta annað fólk! Ég sem hélt að ég væri sú eina...

Ja hér. Sígaunadruslan þín. (oj nú fékk ég pólítískanréttsýnishnút í magann..)

 

Sendu inn athugasemd

<< Home

Free Hit Counters
Free Hit Counter