Veil Speil

föstudagur, mars 04, 2005

Biluð alveg...

Í fyrsta lagi vil ég taka það fram að ég á ekkert líf svo ég hef ekki tekið neinar myndir til að sýna hérna.

Í öðru lagi held ég að ég eigi við vandamál að stríða... ég hef verið að taka eftir að ákveðinn eiginleiki minn hefur verið að ýkjast meir og meir.
Ég á það til að klára ekki hluti sjáiði til, ég er ennþá mjög hissa á því að ég hafi náð að klára lokaritgerðina mína á síðasta ári... það var kraftaverk!!! Ég bara skil það ekki. Til dæmis á ég ofboðslega erfitt með að klára þrif. Ég skil alltaf eitthvað eitt eftir, þríf alla íbúðina þangað til hún er spotless en fer ekki út með ruslapokana. Svo var ég að borða dýrindis kjúklingasalat núna rétt áðan og skálin sem maturinn er í er staðsettur við hliðina á mér... og það er einn biti eftir.. ég fæ mig ekki til að klára.. ég er ekkert úbersödd ekki halda það, heldur er ég bara með eitthvað eigiklára-syndrome. Þið hafið ekki hugmynd um það hvað ég hef oft hent "seinasta bitanum".
Þetta hlýtur að vera ástæðan fyrir því að ég er ennþá bara ég en ekki ofur-Vala. Haldiði það ekki???

Val

1 Comments:

At 7:54 PM, Blogger kollyrrrrrr said...

Eins og ég hef alltaf sagt Valgerður Valgeirsdóttir, þá ert þú geðveik...GEÐVEIK!
þú ert allavega uppáhaldsgeðsjúklingurinn minn!

 

Sendu inn athugasemd

<< Home

Free Hit Counters
Free Hit Counter