Vinna schminna
Ég sit í vinnunni… mér leiðist… það er lítið að gera… ég er svo úberdugleg og brjáluð að ég er búin að vinna uþb 2 aldir fram í tímann svo ég er næstum því verkefnalaus núna… svei mér fyrir að vinna eins og Spídí gonsales!!!
Ég er meira að segja búin að nýta tíma hér til að búa mér til límmiða til að líma á bjölluna heima… þið vitið, nafnið mitt datt af bjöllunni… (eða var rifið af… held reyndar að ég eigi óvin í byggingunni eða hverfinu sem rífur miða af bjöllum og hendir mjölmölflugum og ryki inn um gluggana hjá mér... já og silfurskottum!!!)
Ég er búin að raða og skipuleggja og setja í plastumslög og merkja skúffur og… hvað get ég gert???? Æ… þetta á ekki við mig, ég vinn betur og hraðar ef ég hef miiikið að gera… djö!!!
Ég held ég hugleiði bara fyrir framan tölvuna.. já… hmmmmmmmmmmmmmmmmmm hmmmmmmmmmmmmmmmmm hmmmmmmmmmmmmmmm hmmmmmmmmmmmmmm
Þetta var gott!!!
Shit, ég var að muna að ég gleymdi að skrá mig í aðdáendaklúbb Jose Feliciano!!!! Djö… fer í það núna!!
Ble ble blu blíí

2 Comments:
Hvað segirðu..hvern á ég að berja???Ég er alveg til í smá hörku!
En segðu mér...ertu nokkuð í alvörunni komin með silfurskottur?
Já sko.. nenniru að lemja þennan mann.. veit ekki alveg hvort hann/hún sé til... en nenniru því samt??
Ég sé eina og eina silfurskottu þarna sko... og dreymir þær á nóttunni... ojjjjjjjjjjjjj
Sendu inn athugasemd
<< Home