Veikindi ojbara
Hæbb, ég asnaðist til að ná í flensu... ég sem verð aldrei veik :( ullabjakk. Þið verðið að fyrirgefa mér en ég er að fara að væla svoldið mikið í þessu bloggi.
Anyways þá held ég að kannski náði ég í þetta hjá Kristjönu, ég er ekki viss en þetta eru rosalega lík einkenni hjá okkur, svei þér Dista!!!
Annars skiptir það ekki skít, sérstaklega þar sem hún ætlar að koma við hjá mér eftir vinnu og gefa mér súpu og skila fyrir mig videospólu vííiíí... takk fyrir það Disthildur.
Ég held ég hafi bara aldrei verið eins veik áður.. í alvörunni!!! Þetta er hræðilegt, hósti sem virðist koma úr helvíti og lætur mann svitna eins og svín, engin matarlyst, til dæmis borðaði ég einn banana og hálfan Lays snakkpoka í gær en er að reyna að borða meira í dag... gengur hægt... í fyrrinótt gat ég ekkert sofið, var bara með beinverki og gat ekki komið mér fyrir og hóstaði.
Ég vakna og geri eitthvað í 20 mín til klukkutíma (horfi á vídjó eða les blað eða horfi út í loftið) og fer svo að sofa og sef í klukkutíma. Ég labba um og lít út eins og zombie sem gleymdi að fara í make-up og hárgreiðslu. Engin orka til staðar í líkamanum til að vinna á þessu helvíti þar sem ég get ekkert borðað af viti. Ég horfði á vídjó og dvd og Joey-þættina og Desperate housewives-þættina (góðir by the way) og Lost (líka góðir). Í atriðum sem venjulega hefðu látið mig fara að væla þá kom smá gretta á andlitið og svo undarlegt "uhhh.."hljóð. Hef ekki orku í almennilegt væl!! Hræðilegt segi ég.
Ég held að ég fari ekki í vinnuna heldur á morgun... kannski ekki fyrr en eftir helgi... sjáum samt til.
Væl væl væl væl væl væl grenj grenj grenj grenj arg arg arg arg arg :(

2 Comments:
Litla krúsídúllan mín!!! Ég vissi ekki að þú værir svona agallega veik :/ Ég er búin "í huganum" að fara til heilara og láta hann senda þér hjálp að ofan til þess að lækna þig og ég vona að það dugi til. Annars finnst mér að þú eigir að bíða með það að fara í vinnu fyrr en eftir helgina og ná þessu úr þér. Mér finnst einnig að þú eigir að slíta öllu sambandi við Distu þar sem hún gaf þér þessa ömurlegu flensu..hvað heldur þú að það verði næst sem hún nær að smita þig með...kannski kynsjúkdómi! Ég finn allavega agallega til með þér krúsin mín og vonandi batnar þér sem fyrst!
kisses from Kollý
Ég vorkenndi þér tvisvar í dag og ég held sko bara að það sé alveg nóg!!!!! Hvað með að vorkenna mér núna því að Drífa (sem vinnur með mér) sannfærði mig að hinn eini sanni myndi koma í kvöld því að ég var með bletti á brjóstunum á hvíta bolnum mínum og hann átti að koma og taka eftir því og falla fyrir mér.. en hann kom aldrei! búhú...
Sendu inn athugasemd
<< Home