Menning schmenning
Ég er svo heppin þessa dagana, ég hef ekki undan að velja hvaða fríkeypis menningaratburð ég vil verða vitni að.
Fyrsti menningarhálfvitaatburðurinn í þessari viku var generalprufa leiksýningarinnar Mýrarljós eftir Marinu Carr sem var svo sniðug að skrifa leikrit sem er byggt á gríska harmleiknum Medea sem er svaka svaka drama. Ég mæli eindregið með þessari sýningu en... ég klikkaði á einu... ég kom ekki með kassa af tissjú með mér.
Annar atburðurinn var "Við erum öll Marlene Dietrich FOR" sem er sýnt í Borgarleikhúsinu og ég verð að segja... ég var ekki sátt við "boðskapinn". Ekki misskilja mig, þetta er ofboðslega flott sýning og hún hreyfir við manni, meira en ég bjóst við og vá hvað þetta var ótrúlega fallega dansað og vá vá vá.. en ég pirraðist á endinum... anyways, ef þið ætlið að fara að sjá þetta þá eeendilega gerið það og talið svo við mig ef þið viljið vita hvað ég er að meina... arg... iss... urr...
Þriðji atburðurinn verður bíó... já.. Finding Neverland.. og það verður á döfinni á morgun, svo ég læt vita hvernig mér finnst... :)
Ble ble, farin að lúlla.

5 Comments:
Jæja veilaði speisaði krúsíbúsí-dúlluhnoðrinn minn! Þú og þitt ókeypis drasl hehe..þú ert bara snillingur en misstir þann titil um leið og ég sá að bloggsíða þín er BLEIK! HVAÐ MEINARÐU! Nú upplifði ég í sakleysi mínu, þar sem ég ætlaði að tékka á blogginu þínu og fann fyrir því hvernig blóðsuga líður þegar hún upplifir dagsljósið! Vala,breyttu þessu svo ég geti upplifað líf þitt, þar sem ég sé minna af þér...líklega því ég hef þann titil þar sem ég er spillta vínkonan...ekki eitthvað sem ég er sammála en hvað veit ég HEHEEHEHEHEHEHEHEHEHEHEHEHEHEHEHEHEHEHEHEHHEEEHEHEHEHEHEH...kannski og kannski ekki...æ-i, mar...so FUCKING WHAT!
sAkNa ÞíN
XXX kollý
Hey.. ég sakna þín líka! Fékk reyndar að njóta nærveru þinnar í nútímasápuóperu kökuétandi þynnilda sem var ágætt svossem ;) En mundu að það er líka menningarlegt að fara á Hressó þar sem ásta vinnur fyrir daglegu brauði og námslánum! Og við fátæklingarnir (one by choise the other by ..poorness) ættum að gera eitthvað sniðugt.. til dæmis gefa öndunum brauð sem við fáum gefins í bakaríunum .. eða skoða list - arkítektúr - labba um bæinn og skoða hús.. alveg ókeypis!
Fríkeypisfátækrasparnaðarkveðjur
Ásta
Jááááááá... ég er til í að fara að gefa öndunum brauð... ertu með Kollý??
Og Kollý... ég er ekki tilbúin til að breyta úr bleika alveg strax... tilfinningar mínar eru rétt túlkaðar með þessum lit! Þú gætir sett á þig sólgleraugu þegar þú skoðar!!?!?!??!?? :D hohohoho
við erum fleiri þarna úti..sammála þessari indælu Kollý..hún hefur rétt til síns máls og eflaust skynsöm ung stúlka með allt lífið framundan..ekki láta hana líða svona illa..uhh..ásamt okkur öllum hinum...þarna úti...
BLOGGAÐU MAÐUR....
Sendu inn athugasemd
<< Home