Konudagurinn....
Hann held ég skárri hjá mér heldur en hjá hinum einhleyptu stúlkunum...
Ég fékk amk konudagskvöldmat... Ég var svo heppin að pabbi og Franz elduðu handa telpunum sínum og mér var boðið að fá að sitja með og japla á indæliskjúkling.
Tvíhleypt fólk (ekki einhleypingar/einhleypur/einhleypt fólk)er alveg að græða stórt þessa dagana, valentínusardagur og konudagur strax á eftir... eða hvað??? lítum á góðu hliðarnar allar saman, þetta eru gríðarleg fjárútlát!!! Rauðar rósir eru alveg rándýrar skal ég segja ykkur... held ég... ég hef ekki keypt margar síðan... síðan... hugs... hmm... allavega mundi ég frekar eyða peningunum í vídjóspólu og popp... sem ég horfi á... ein... eða að púsla bara...
djöfulsins, þið vinnið enn og aftur þið bévítans tvíhleypur!!!!

3 Comments:
Ég fékk enga ástarjátningu eða blóm eða neitt..ég er heldur ekki kona, svo ég skil það mæta vel..bara stelpugrey, virkilega kynæsandi stelpugrey!!!!!!HEYRIÐI ÞAÐ!!!!!
Allavega, who needs flower, þetta drepst hvort sem er allt saman :)þá þarf maður að gera sér leið niður í ruslagámana og henda þessu..i got better things to do with my time..eins og að ...drekka...hóst hóst...
en....who needs chocolate and who needs free sex...??? ég get ekki sagt þetta upphátt án þess að fella tár. Hvorugt fer í ruslagáminn og ég hef ekkert betra við tíma minn að gera...jú nema vinna í lottó!
...því drekk ég til að gleyma
Nei, reyndar bauð Ásta mér að lessast með sér í gær...en ég afþakkaði. Var að púsla.
Sendu inn athugasemd
<< Home