Veil Speil

föstudagur, febrúar 04, 2005

Jæja þá...

Nú er ég komin með ísskáp sem heitir Önundur og nýja klippingu... nú ætti líf mitt að umbreytast... og vinsamlegast kallið mig Valgerðir Voðalegu héðan í frá því planið er að vera voðalega voðaleg (orðskýringar Völu: Voðaleg = ung kona á framabraut sem gerir allt sem henni dettur i hug þegar henni dettur það í hug því lífið er of stutt)

pæling: ég las svolítið um daginn sem Jón Gnarr hinn mikli skrifaði. Hann var að spá í efnishyggju og mér fannst einn punkturinn hans vera mjög sniðugur. Pælingin er að við fæðumst inn í þennan heim nakin og við förum héðan nakin. Í millitíðinni teljum við okkur eiga hitt og þetta (hús, bíl, maka, gæludýr oþh) en í rauninnni er það bara ímyndun. Hvernig getur lífvera átt eitthvað með "húð og hári" þegar við förum ekki með neitt út úr þessu lífi þegar við svo loksins drepumst. "Að eiga eitthvað" er bara hugtak sem segir í raun ekkert nema það að við teljum okkur hafa umráðarétt á einhverju, sem gæti breyst á morgun. Samfélagið í dag virðist ganga út á það að "eiga sem mest" sem er bara blekking. Bla bla bla. Ég veit ekki alveg hvort ég sé að koma þessu rétt frá mér en mér finnst amk pælingin vera sniðug, þetta er eitthvað sem ég hef pælt í en hann er að velta þessu fyrir sér á trúarlegu nótunum.

Eignarhald er hugtak... hugtök eru búin til af mönnum.

Út frá þessu hef ég oft pælt í því að við sem Íslendingar eigum ekki Ísland... við höfum ekki einhvern heilagan rétt á því að búa á þessu landi af því að við vorum svo undarlega heppin að foreldrar okkar eru héðan. Auðvitað viljum við ekki gefa upp það sem við höfum haft til afnota (það er mannlegt) en við höfum engan rétt á því að neita öðrum um afnot af landssvæði. Ef fólk vill koma hingað til að búa hér, hver erum við að reyna að stoppa grey utanaðkomandi manneskjur sem vilja koma hingað til að hafa það betra en þau höfðu það á öðru landssvæði???

Anyways, nóg um það...

Ég ætla að fara að bjarga heiminum núna.... sjáumst síðar.

3 Comments:

At 8:50 AM, Blogger alistairig said...

kommi!

 
At 9:44 PM, Blogger Vala said...

Er það svo slæmt???? :/

 
At 8:36 PM, Blogger Kata said...

Alveg sammala...
Ef eg a fyrir bjor..tha er eg anaegd og eg a svo sannarlega fyrir honum her i Russia...hehe....
Er meira ad segja med einn nuna...SKAL

 

Sendu inn athugasemd

<< Home

Free Hit Counters
Free Hit Counter