Framtíðin
Ég held stundum að ég hljóti nú bara að vera skyggn.... ég fór að velta fyrir mér framtíðinni og tataaaa... ég sverða, ég bara finn á mér að svona spilist úr þessu hjá okkur vinkonunum.
Kata: kemst í rússkí mafíuna og verður glæpamaður af lífi og sál og eftir 3 og hálft ár verður hún komin á toppinn með því að sofa hjá réttu gaurunum og drepa rest.
Kristjana: Hún mun á næstu 2 árum átta sig á því að hún á að vera blaðamaður/fréttamaður. Fær vinnu hjá 60 minutes og fær þar verkefnið "Kata, the devil herself or just an innocent curly red-head who got cought in a whirlwind of infortunate tragic incidents"
Ásta B: mun framleiða "Kata, the movie" vegna þess að fréttin verður umtöluð út um allan heim og Ástan mun græða þar helling af peningum og komast þannig inn í Hollívúdd gengið og kynnist fljótlega Pittinum góða sem er þá nýskilinn við Andjelínu Djólí og þau lifa happilí ever efter.
Ásta S: Kemst í hann krappan því Kata ræður hana sem lögmann sinn til að lögsækja allar telpurnar því henni er svo annt um orðspor sitt. Ásta tekur það að sér jafnframt því að verja hinar stelpurnar. Hún rífst við sjálfa sig í dómssalnum eins og henni er einni lagið og viti menn, hún verður frægasti lögmaður heims vegna þessa máls.. og viti menn...og hún vann málið!!!
Kollý: er vitni fyrir bæði sakborninga og sækjanda og á meðan hún ber vitni, þá teiknar hún ódauðlegar myndir af málsaðilum. Sem seljast á Sothebys á skrilljón evrur og upp frá því verður hún dýrasti og hamingjusamasti listamaður sögunnar.
Vala: fylgist með þessum ósköpum úr kastalanum sínum í fjarska. Þegar dómur fellur í dómsmálinu var komið nóg. Heimurinn þarf á henni að halda. Hún klæðir sig í gallann og skikkjuna, flýgur af stað í dómssalinn og sættir alla og flýgur svo heim áður en Americas Next Top Model byrjar, hefði náttúrulega geta tekið það upp en videoið er eitthvað bilað...
Svona verður þetta. Ég sverða ha!!! raddirnar sögðu það.... :/

5 Comments:
Heeh..Vala..eg vissi ekki ad thu vaerir skyggn...VEI VEI..Eg hlakka til...fae eg tha ad rida og drepa?
Afhverju fékk ég ekki frekar að vera rokkarinn sem verslaði allt dópið af Kötu..ég er ekkert töff þarna, hefur séð liðið sem teiknar í réttarsalnum!
Ég færi bara skilaboðin frá framtíðinni.. ég er ekki að búa þetta til bara ég sjálf eitthvað með mínu ímyndunarafli... ertu eitthvað klikk?? Eins og ég gæti búið svona til!!?!?!!??!?!?
ég er ansi hrædd um að Veil hafi misskilið þetta, Veil verður náttla viðskiptajöfur með sérstaka hæfileika á sviði tískulegrar framsetningu í fyrirtækjum, hún mun finna upp dásamlegar leiðir til að bæta samskipti í stórfyrirtækjum, svo sem customizaða dóna smileys fyrir msn,- forstjóri andstæðingana að sjúga hitt og þetta. Svo hannar hún hárgreiðslur sem allir starfsmenn bera, sem og innleiðir þá tísku að á skrifstofum vinni allir naktir eða í g-þveng einum klæða. Með þessu eykst afkoma fyrirtækjanna þúsundfalt
By Dista Gudbrand REPORTER:
VALGERDUR Valgeirsdottir has vowed to be more cautious about eating carrots in the future - after a carrot given to him by girlfriendl Koolly left her hallucinating and raving predictions about the future. But who knows if this is by fault of poisonus carrot or supernatural gifts? Many are puzzled.
Valgerdur is known for her healthy lifestyle and recently gave up smoking, and chews the carrots to keep herself away from cigars.
Sendu inn athugasemd
<< Home