Veil Speil

mánudagur, apríl 11, 2005

Trú schmú

You scored as atheism. You are... an atheist, though you probably already knew this. Also, you probably have several people praying daily for your soul.

Instead of simply being "nonreligious," atheists strongly believe in the lack of existence of a higher being, or God.

atheism

92%

Paganism

79%

agnosticism

75%

Satanism

67%

Buddhism

58%

Judaism

50%

Islam

46%

Hinduism

33%

Christianity

25%

Which religion is the right one for you? (new version)
created with QuizFarm.com

Meistari Vala

Meistari Vala, meistari Vala.
Sefur þú, sefur þú?
Hvað slær klukkan, hvað slær klukkan?
Hún slær hálf tólf, hún slær hálf tólf!!!!

Næsta haust lítur allt út fyrir að ég sé að fara í framhaldsnám!! Jibbíííí!!

Hamingjuóskir óskast!!

miðvikudagur, apríl 06, 2005

Ellismellur

Elli smelli smelllll

Hrukkur nálgast á ógnarhraða og göngugrindin og gervitennurnar eru á leiðinni með ShopUSA. Á föstudaginn verð ég loksins kona!! Kerling!! Hrukkudýr!!

Nei nei nei bara djóka hehehehe, ég ætla að vera unglingur FOR EVAHHH!!!
Ég hlakka svooo til að eiga afmæli :D, ég lít á afmælisdaga sem eina daginn á árinu sem maður fær að stjórna ööööllllluuuuu, þá meina ég að maður ætti að fá að stjórna því sem allir gera og hugsa... ó já!! Drottning heimsins í einn dag. Það er svolítið erfitt því að í raunveruleikanum er maður ekki með þess konar vald (GLATAÐ)... því miður. Til dæmis er náttúrulega hræðilegt að vakna við vekjaraklukkuna og maður getur EKKI stoppað tímann og sofið í 2 klukkutíma, vaknað og sett tímann aftur af stað. Maður býst við því að fá lúðrasveit inn á skrifstofu til sín óvænt með óperusöngvara sem syngur afmælissönginn fyrir mann, en enginn kemur... Maður vill að öll umferðarljós séu græn á leiðinni heim úr vinnunni, en viti menn, þau verða rauð....

En þá er bara að líta framhjá þessum litlu hlutum og byrja daginn hlæjandi og sofna hlæjandi.. það er planið víííííííííí :D

Og já... gjafirnar... shit gjafirnar... ég vil fá 38.023 gjafir. Græðgi hugsið þið... ég segi nei... ekki græðgi. Heldur Drottning alheims!!! BWHahahahahhahahaha

Ég er ekki að tapa mér...

Valalalalaaaaaa

miðvikudagur, mars 30, 2005

Ooooog hér koma myndir fyrir Kötulínu

Sorrí Kata hvað ég er ekki búin að setja myndir hérna inn en hér er amk eitthvað..



Ásta B og Dist eitthvað að skoða í tölvunni hennar Ástu... man ekki alveg hvað þær eru að gera.... var búin að drekka of mikið af G&T þarna.


Dist og Pásta á Hressó.. víííí... pósipósipósi


Kollý litla sæta á bakvið barinn... hún er örugglega að hugsa eitthvað dónó...


Hæææææææææ


Hehehe.. það er svo erfitt að keyra og brosa og pósa og vera sætur allt á sama tíma... hún keyrði á 2 gamlar kellingar, 3 bíla og eina nýbyggingu við áreynsluna.

Hæææææææ

og hó :D

Ég var að tala við Pástuna í gær og við vorum að ræða um ljótuna alræmdu. Hver kannast ekki við að vakna og líta í spegil og segja "Arg, er ég með ljótuna í dag!! Úffffff" En það er bara ekki svo slæmt skal ég segja ykkur. Við nefnilega komumst að því að með smá rökleysu... nei sko... ég meina sannindum, er hægt að redda deginum.
It goes something like this.....

Þið vitið nú öll saman að fallegt fólk er heimskt og ljótt fólk gáfað. Þetta eru staðreyndir sem hafa sannað sig margoft í hinum ýmsu sjónvarpsþáttum, bíómyndum og bröndurum. Hver man ekki eftir gullfallegu ljóskunni sem hristir vatnsflöskuna áður en hún tekur sopa því bragðið hefur allt sest í botninn. Þá er á hinum pólnum ljóti og bólugrafni ofurnördinn sem leysir stjarnfræðilega langar formúlur í kollinum meðan hann borðar morgunmatinn.

Með þessi fræði að leiðarljósi getur þú litið í spegilinn á morgnanna og sagt "Djöfull er ég æðislega gáfuð eitthvað í dag!!"

Þar hafiði það!!!

þriðjudagur, mars 29, 2005

Katatataaaaaaaaaaaa

Í dag er merkur dagur, í dag á Katarina Ruskí afmæli.
Rauðhettan sú er eins og alþjóð veit ekki meðal vor til að halda upp á herlegheitin en það verður bara að hafa það. Við fögnum bara sitt í hvorum heiminum... (úff, það hljómar eins og hún sé död, sem er ekki málið sko) Hamdúllan er amk glöð í hjarta sínu í dag til að fagna þessum merku tímamótum.

Húrra Húrra Húrra Húrraaaaaaaa

Skál fyrir þér Katskí

Og ég átti að skila knúsi frá Hveragerði Hwowhowhowhowho :D

Lov jú
Valalíló

mánudagur, mars 28, 2005

Sukkið búið

Jæja gott fólk, sukkhelgi lífs míns er lokið

Dömudjamm á föstudaginn sem breyttist í ofur-fyllerí.
Græðgin fór með mig í súkkulaði og snakki.
Búrrítóát.
Sjónvarpsgláp í lazy-boy.
Freyðivín.
Grilluð kjúklingaspjót.
Nýjasti Joey-þátturinn kominn í Ferdinand.
Vinna á morgun.
Framtíðarpælingar varðandi nám og fleira að troða sér inn í litla heilann minn. Kanínueltingaleikur í Garðabæ (ekki Hveragerður).

Vona að næsta helgi verði örlítið heilsusamlegri og andlega uppbyggileg.

Kveðja,
Speil

miðvikudagur, mars 16, 2005

Sól sól skín á mig

Vitiði, lífið er stutt og því skil ég barasta ekki af hverju ég sit heima og horfi á ANTM í sjónvarpinu... leyfum okkur að komast að því af hverju það er... jú, það er vegna þess að ég er í biðstöðu, bið bið bið bið... en um leið og biðinni er lokið þá bara skelli ég mér í ræktina og.. nei ekki í ræktina, ræktin tekur orku.. jú kannski smá í ræktina.. svo bara út að hitta fólk, hitta fólk og tala við fólk og kynnast fólki og læra meira um fólk... fólk er forvitnilegt og skemmtilegt ef maður leyfir sér að sjá skondnu hliðina á því.

Jáhhá.. það er málið, oooog gera eins og síðustu helgi, eftir vinnu á föstudaginn fór ég með brauð til andanna á tjörninni og spjallaði við þær.. eða.. aðallega gæsafrekjurnar sem næstum átu mig til að ná brauðinu... en þær eru samt soldið sætar híhí :)

Nú er komið að því aftur að leita að íbúð... bjánablesinn sem á íbúðina sem ég leigi ætlar að selja hana, svo ég er aftur næstum komin á götuna... skemmtilegt sígaunalíf sem ég lifi. Ætli ég hafi verið sígauni í fyrra lífi?? Það hljómar alveg ágætlega, aldrei að stoppa á einum stað lengi og kynnast fólki og svo bara stinga af til að hitta fleira fólk.. sígaunar hljóta að hafa haft mikla innsýn inn í mannfólk því þau hafa hitt svo marga.. hmm... sígaunalíf.. er það kannski málið fyrir Völuna litlu?? Nahh... ég er meira svona "hafa öryggi" kind of gal. Eða hvað????

mánudagur, mars 07, 2005

Ullabjakk

Nú er komið nóg...

ég er búin að gefast upp... ég er sammála tíkarpsenunum, fólk er ekki í lagi. Mig langar bara að slá mannkynið utanundir. Er fólk upp til hópa fífl?? ég spyr. Mikilláta, hrokafulla, hégómlega fólk!! Af hverju hagar fólk sér ekki bara vel og er tillitssamt, umburðarlynt og gott!!! Hvar er góða fólkið?? HVAR????

Er heiðarlegt og gott fólk útdautt, eða hefur það kannski aldrei verið til?? Er þetta spurning um það að bíómyndir og sjónvarp hefur búið til þessa ímynd af góðu fólki sem er réttlátt og indælt??

Eða er ég fordómafull og dómhörð helv... belja sem gefur engum séns?!?!?! (æ nei ekki belja, ég fíla ekki beljur, höfum það tík, hundar eru skárri kostur)

Hvort sem er rétt þá er þetta lose/lose situation.

Vonleysiskveðja
Vala

Free Hit Counters
Free Hit Counter